Bloggheimur Kötu
08.10.2006 14:48:03 / katie

Hætt með þessa!!!

Komin með nýja síðu www.kataingolfs.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 00:10:42 / katie

Frekar skondið!!!

Hafiði virkilega íhugað það sem skeði 11. september 2001...? Ég hef allavega gert það og hef alltaf verið alveg sannfærð um að það sé Bush sem stendur á bakvið þetta allt saman.. En það hefur þurft einhvern virkilega klárann til að plana þetta allt saman.. ég fann svoldið skemmtilegt á síðunni hennar Ásdísar frænku, svona fyrir þá sem nenna að spá soldið í þessu..

1. Í New York City eru 11 bókstafir

2. Í Afghanistan eru 11 bókstafir

3. Í nafni Ramsin Yuseb (Hryðjuverkamaðurinn sem hótaði að eyðileggja Twin Tower árið 1993) eru 11 bókstafir.

4. Nafnið George W Bush er 11 bókstafir

Þetta gæti allt verið hrein tilviljun, en nú verður þetta áhugavert:

1. New York er 11. fylkið

2. Í flugi 11 voru 92 farþegar (9 + 2 = 11)

3. Í flugi númer 77 sem einnig flaug á tvíburaturnana voru 65 farþegar (6 + 5 = 11)

4. Árasinn átti sér stað 11. september, sem er einnig þekkt sem 9/11 (9 + 1 + 1 =11)

5. Dagsetningin er eins og neyðarnúmerið í Bandaríkjunum 911 (9 + 1 + 1 = 11)

Ennþá hreinar tilviljanir?? Haltu lestrinum áfram.....

1. Heildarfjöldi fórnarlambanna sem voru í flugvélunum sem notaðar voru í árásunum var 254 (2 + 5 + 4 = 11)

2. 11. september er 254. dagurinn á árinu (2 + 5 + 4 = 11)

3. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 3.11.2004 (3 + 1 + 1 + 2 + 0 + 0 + 4 = 11)

4. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 911 dögum eftir árásina á Twin Towers.

...og nú kemur það sem er ennþá merkilegra:

Á eftir fána Bandaríkjanna (Stars and stripes) þá er Örninn þekktasta merki landsins

* Í eftirfarandi versi úr Kóraninum, hinni helgu ritningu Íslam, stendur: "For it is written that a son of Arabia would awaken a fearsome Eagle. The wrath of the Eagle would be felt throughout the lands of Allah and while some of the people trembled in despair still more rejoiced: For the wrath of the Eagle cleansed the lands of Allah and there was peace."

Þetta er vers númer 9.11 í Kóraninum.

 Heldur þú ennþá að um hreinar tilviljanir sé að ræða? Prófaður þá eftirfarandi: *

Farðu í Microsoft Word og gerðu þetta:

1. Skrifaðu með hástöfum: Q33 NY. Flugnúmerið á fyrstu vélinni sem var flogið á tvíburaturnana.

 2. Litaðu Q33 NY

3. Breyttu stafastærðinni í 48

4. Breyttu leturgerðinni í WINGDINGS (eða WINGDINGS 1)

Svolítið furðulegt...0


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 10:35:41 / katie

Allt að gerast

Aldrei læri ég á mistökum!!! Ég var búin að skrifa þvílíkt mikið og gleymdi náttúrulega að copy/paste!!! Það er bara mest pirrandi í heimi!!!

Þannig að ég ætla að hafa þetta stutt!!!

Hvað er að frétta af Kötu??

-Ég er orðin íbúðareigandi og dóttir mín er flutt að heiman vegna þess að pabbi hennar ákvað að rústa baðherberginu með þeim afleiðingum að aðeins klósettið er eftir og steinveggir!!! Fokhelt semsagt.Og allt í drasli og er ekki hægt að bjóða svona litlum prinsessum upp á svona!!!

-Ma og pa komu um helgina að mála og koma næstu helgi líka að mála.

-Íbúðin mín er tóm sökum skorts af húsgögnum..en við munum sennilega redda því inn á Ak á laugardaginn...eða ég allaveg heimta að það verði gert eitthvað við baðherbergið sem fyrst.

-Dóttir mín er orðin stór og farin að labba...ég fer að ferma í næstu viku!! Ykkur er boðið

-Ég er að drukkna í framkvæmdum, vinnu, og skóla...en katan reddar því:)

Jæja ég er hææ í bili

Blessbless


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 16:30:37 / katie

LOKSINS

Mín er komin í skólan og ég fæ eitt stykki hvíta húfu í vor LOKSINS!!!! Hlakka ekkert smá til og ég ætla sko að halda þvílíka veislu í boði mömmu og pabba...hehehe:) Og ykkur öllum er boðið sko fólkinu sem ég þekki...ekki kanski öllum!!!

Ég ákvað í gær að setja Rakel til dagmömmu frá 8-2 og hún byrjaði í aðlögun í dag og gekk bara eins og í sögu:) Ég hef því tíma til að læra og mæta í skólan!!! Ég er ekkert smá jákvæð á þetta allt saman að ég er bara í skýjunum:)

Magni rústaði þessu svo í gær að það var ekki einu sinni fyndið-en ég hels að hann eigi ekki eftir að vinna þetta, ég held að Toby vinni-hann er líka svo sætur eða það finnst mér:lol::lol::lol:

Ég fæ mjög líklega íbúðina afhenda um miðjan september-vonandi og þá verður farið í að græja og gera:) Það verður reynt að hafa allt tilbúið fyrir afmælisveisluna hjá prinsessunni minni!!!!

Annars er ekkert annað að frétta af mér í bili!!!!

Kveðja katie


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 23:35:09 / katie

Íbúðarkaup

Ég er búin að vera ekkert smá mikið löt við að skrifa!!!

Skólinn byrjar á morgun og´líst mér bara ágætlega á það hlakka bara til að takast á við það:) Ég ætla vera svo dugleg taka alveg fullan skóla og reyna að klára þetta næsta vor og skella mér svo í Háskóla og reyna að mennta mig eitthvað:) Ég er mjög spennt fyrir sálfræði og langar að læra hana!!! Þetta er spurning sko!!!

Ég er svona 98% búin að kaupa íbúð eða íbúðina sem tengdó eiga, þau eru að fara flytja í einbýlishús þannig að við kaupum þeirra íbúð:) Við erum bara mjög spennt við ætlum að mála og græja, og kaupa okkur einhver húsgögn við eigum nefnilega ekki mikið af húsgögnum...en það er ekkert skemmtilegra en að skipuleggja og gera fína sína eigin íbúð:) En ef þetta gengur upp allt saman þá munum við fá íbúðina 1 okt:)

Rakel Sif er að verða 1 árs 8 okt og mér finnst það svo ótrúlegt, mér finnst eins og ég hafi átt hana í gær!! Hún er líka ekkert smá dugleg tók fyrsta skrefið sitt í dag og hljóp um í gær með þvottasnúru sem er sko frístandandi ef þið skiljið mig..hehehe hún er bara fyndin:)

Ég ætla að fara henda mér í háttin mín er orðin þreytt!!!

Mér þætti vænt um að fá smá kvitt..!!!!

Góða nótt englarnir mínir

Kveðja Kata


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 14:05:42 / katie

Sumarfríið mitt búið:(

Ég trúi ekki að ég sé búin í 6 vikna sumarfrí...þetta er bara ekki heilbrigt hvað þetta er fljótt að líða!!! Mér finnst mamma og pabbi ný´farin út en þau eru að koma heim á fimmtudaginn...halló!!! Ég er semsagt að fara vinna eftir klukkutíma... ég á mjög sennilega eftir að detta niður úr þreytu eftir þennan vinnudag:(  HLAKKA ekki til!!!!

Þetta sumar er nú bara búið að vera svona þokkalegt-gerði margt og mikið í fríinu en veðrið var nú ekki upp á marga fiska...það var bara ömurlegt:( Ég er ekki frá því að ég bara flytji bara út í hlýjuna næsta sumar!!!

Það er bara búið að vera ein þoka á króknum eða rigning, ég hafði sko viljað vera á Hú í sumar í blíðunni þar. Þar getur maður allavega farið í göngutúr í skrúðgarðinum og gefið öndunum brauð en ekki fara í næsta garð og gefið hestunum brauð!!! Þetta er sko meira sveitafólkið hérna á króknum-og ég er ekki frá því að Húsavík sé einn fallegasti bær á öllu Íslandi, hann er svona vinalegur og skemmtilegur:)

Dóttir mín er hætt að kalla mig mömmu hún segjir bara Kata. Pasbbi hennar var að kalla á mig í gær hann ætlaði að sýna mér eitthvað og kallaði KATA og svo strax á eftir kallar hún á eftir h0num KATA svona geggjað hátt eins og pabbi hennar gerði og núna segjir hún ekkert annað en KATA mjög fyndið:)

Stína takk fyrir verslunnarmannahelgina, þú ert bestasta mágkonan mín...ég á nenfilega svo margar...hehehehehe:) Sorry ég bara gleymdi að nefna þig...sorry:)

Verð að þjóta

 Katie


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 08:53:33 / katie

Góð verslunarmannahelgi

Eru þið að kidda í mér hvað Magni er ógeðslega góður söngvari..!!! Hann er geggjaður...ég fékk alveg mannahúð á að hlusta á hann hehehehe:)

Verslunarmannahelgin

Hún var mjög fín og eyddum við henni á Sigló, á síldarævintýri:) Það var þvílík blíða á föstudeginum lögðum við á stað um þrjú leytið og vorum búin að koma okkur fyrir um fimmleytið og ákváðum að taka smá bæjarrölt um Sigló. Svo hringdi Harpa í mig og var hún og Rúnar á leiðinni til okkar og ég var ekkert smá ánægð að fá þau. Þau komu svo og við fórum í fóbó á meðan tengdó passaði og kyndaði upp grillið. Það var svo farið í smá bæjarrölt og kíkt á stemminguna í bænum og farið svo snemma að sofa.

Á laugardagsmorgninum var vaknað snemma og skellt sér í sólbað í blíðunni og svo fékk ég þær gleðifréttir að litla systir mín hún Eydís og Ari væru´á leið til okkar, vává ég var ekkert smá glöð að þau ætluðu að koma og vera með okkur líka:) Svo var grillað og var ætlunni að fara á ball með Geirmundi en þá var bara uppselt á kallinn þannig að við fórum bara í partýtjaldið hjá serbunum...!!! Svo kom þetta vibba veður..þá er ég að tala um rok og rigningu dauðans..!!!Við ætluðum að vera fram á mánudag en við fórum hei´m á sunnudeginum, nenntum ekki að vera í þessu veðri.

Eydís og Ari komu með okkur á krókinn og gistu hjá okkur:)

Við vorum svo svekkt út í veðrið að við ákváuð að gera gott úr þessu og skelltum okkur í smá partý sem endaði með því að við fórum bara snemma heim að sofa:) Ég og Davíð fórum svo með þau á rölt í bænum, fengum okkur kaffi og köku á kaffi krók. Svo drifu þau sig heim í borgina, en það var ekkert smá gaman að fá þau í heimsókn í sveitinna:) Takk fyrir helgina krakkar mínir!!!

kveðja katie


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 21:30:33 / katie

Mögnuð helgi

Helgin var geðveik!!!!

Þetta var ekkert smá skemmtilegt bekkjarkvöld, það var mikið sungið og hlegið:) Það er líka svo gaman að hitta alla eða svona næstum alla bekkjarfélagana, vona að það kom i fleir næst:) Við náðum samt að skemmta okkur mjög vel!!!

Svo skelltum við okkur á ball með Ínu á Sölku og það var óggila gaman, ég beið samt eftir því að gólfið myndi hrinja niður...ég þurfti valla að hoppa á dansgólfinu, það dúaði svo mikið að gólfið reddaði þessu bara fyrir mig:) Ég hitti ekkert smá mikið að fólki og það er ekkert skemmtilegra en að hitta gamla vini og kunningja:) Ég fór svo heim með ruslinu endaði í skrúðgarðinum með Fríðu og Baldri að týna blóm og gera ýmsar fyndnar og skemmtilegar kúnstir...bara fyndið:)

Ég var svo hrikalega þunn daginn eftir að ég lá upp í sofa heima og fékk heimsendan hamborgara með öllu:) Helga og Dana redduðu því fyrir mig:) Við sátum svo lengi og töluðum saman...!!! Ég ákvað svo klukkan sex að nú yrði ég að fara koma mér af stað, ég kom heim klukkan níu um kvöldið...ég þurfti að stoppa ansi oft á leiðinni...ég var alltaf alveg að sofna!!! Mér hefur ekki liðið svona illa lengi:( En ég komst heil á húfi og lagðist upp í rúm um tíuleytið og vaknaði í hádeiginu fersk á því:)  En ég vill þakka öllum mínum bekkjarfélugum sem voru þarna á laugardaginn fyrir geggjað skemmtilegt kvöld-mjög gaman:)

Takk takk Kata


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 11:53:17 / katie

Kodak moment

Ég er að deyja ég er svo löt við að blogga...!!! Þó svo að maður sé í sumarfríi þá einhvern vegin bara nennir maður ekki að blogga:( Ég er nú búin að brala mikið í sumarfríinu mínu ég er búin með þrjár vikur og á þrjár eftir:) LÚXUS:):) Við fórum í borgina að hitta skvísurnar í firðinum og það var ógeðslega gaman...kodak momentin okkar klikkuðu ekki..hehehehehe:) Enda er ég´líka með þvílíkt stóran marblett eftir fall mitt niður stigann á ellefunni og ég var ekki sú eina sem fór eina salíbunu:)

Fór líka í heimsókn til Fríðu sætu og Baldurs, íbúðin þeirra orðin svo sæt:) Herru já svo var skellt sér í Ásbyrgi með fellihýsi og þar var þessi bongóblíða:) en nei þá ákváðum við að skella okkur á Egilsstaði í rigningu og það ringdi í heila tvo daga, þannig að við skelltum okkur bara heim:) Davíð og hans árgangur var svo með bekkjarmót á laugardeginum og það var ekkert smá gaman, þvílíkt húlum hæ:)

Svo er það bara Víkinn á laugardaginn, mér skilst að þar eigi að vera eitthvað massa stuð hjá '85 árganginum svo það er um að gera að skella sér í sæluna::) Hlakka mikið til að sjá alla bekkjarfélagana mína...!!! Sjáumst á laugardaginn í góðum gír:)

KATA


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 10:48:54 / katie

Lífið er óútreiknanlegt

Ég hef mikið verið að pæla í lífinu síðustu daga...

Hvað það er fljótt að líða og hvað það sé óútreiknalegt, ég hef séð það að það þarf að lifa því eins og hver dagur sé sá síðasti, ég upplifði mjög sorglegan atburð síðustu helgi og sá hvað lífið er mikils virði og líka hvað lífið getur fjarað út á mjög stuttum tíma. Lífið er líka svo fljótt að líða, ég er að verða 21 árs á föstudaginn, mér finnst svo stutt síðan að ég var lítil stelpa í grunnskóla og ég man það eins og það hafi verið í gær. 

 Það er svo sorglegt þegar ungt fólk er tekið í blóma lífsins, en það er ekkert við því að gera svona er lífið er alltaf sagt. En eins og ég sagði þá er lífið óútreiknalegt og maður veit aldrei hvenær kallið kemur, það er eitt sem er víst...því miður:(:(

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, en eins og þið sjáið þá er ég í mjög svo miklum pælingum!!!

Ég vill enda þetta blogg á því að votta fjölskyldu og vinum Sigrúnar mína dýpstu samúð.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 22:13:51 / katie

Styttist í sumarfrí:)

 

Helgin hjá mér var bara SNILLD:) Hún byrjaði á því að við mæðgur fórum á Hú á fimmtudeginum og ætluðum við að vera alla helgina hjá mömmu og pabba. Við vorum svo plötuð í útilegu inn á Ak eða í Kjarnaskóg og við skelltum okkur þangað á laugardeginum, Davíð fór með Erlu og Feyki og ég hitti þau svo á tjaldsvæðinu. Þannig að helgin sem ég ætlaði að vera á Húsavík varð bara að einum og hálfum degi, en ég er að byrja í sumarfrí eftir eina og hálfa viku...veivei undan öllum í fiskiðjunni...ég er nefnilega svo einstök...hehehe:) En við ætlum örugglega að fara í útilegu í Ásbyrgi fyrstu helgina í júlí og ætlar Davíð að skilja okkur Rakel eftir á Hú eftir útileguna...og ég ætla mér að dvelja þar í einhverja daga:) Ég verð einmitt 21 árs í þeirri viku...en ætla mér að eyða afmælisdeginum með kallinum þannig að þetta verða 4 dagar:) ÉG vill að við hittumst einhverjir 85 krakkar og förum að skippuleggja eitthvað sniðugt og endilega koma með einhverjar sniðugar hugmyndir:) Þetta bara verður að fara gerast...ef við ætlum að gera eitthvað!!!!!´

Ég er að fara kaupa mér íbúð eða ég er að leita eftir íbúð til að kaupa...ég er allavega að fara út úr íbúðinni minni í næstu viku..og erum við að fara búa hjá tengdó þangað til að við finnum eitthvað...vona að það verði sem fyrst:) Ég býð bara spennt.!!!!

Við ætlum svo að skella okkur í borgina í sumarfríinu erum ekki búin að ákveða nein dag en ég kem...ég verð að koma það er bara must, held að það sé tími til komin að fara hitta allar skvísurnar í Hafnarfirði og taka eitt gott djamm með þeim:) Ég hef ekki séð þær né heyrt í þeim svo lengi;( SAKNA YKKAR ELSKURNAR MÍNAR!!!!!

Laufey, Toggi og Kristín Erla komu til´okkar í heimsókn í síðustu viku og var ekkert smá gaman að sjá þau, Kristín búin að stækka ekkert smá mikið samt svo lítill...miðað við hlunkinn minn:)

Annars er lítð að frétta annað en 6 vikna sumarfrí framundan og ég get ekki beðið eftir fríinu...ég ætla nefnilega að gera svo mikið:)

.....Hef ekkert að segja ykkur í bili...:D:D:D

Kveðja Kata í sumarskapi:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 23:24:23 / katie

Sólarströnd

Hvað er eiginlega málið!!! það eru allir í kringum mig að fara til útlanda eða eru farnir til útlanda...og þá er ég að tala um bara í þessari viku!!! Það er alveg sama á hvaða bloggsíðu ég fer inná þá eru allir að tala um að fara til útlanda:( Sko á sunnudaginn síðasta fóru Elva, Svanhildur, Jenný og Heiðdís til frakklands og verða þar í mánuð, svo voru Anna Bergmann og Gunna að fara í útskriftarferð til Búlgaríu í gær og Eydís og Harpa fóru til Danmerkur í gær...og svo er fullt af krökkum frá Húsavík farnir til Benedorm. Dana og Andri eru svo einhversstaðar á spáni að sóla sig...þetta er ekkert smá mikið!!!!

Við erum svo mikið að pæla að fara út í sumar á sólarströnd...ég bara verð að fara. Ég fór síðast árið 2003 á sólarströnd og það er alveg helvíti langt síðan..er ekki einhver til í að koma út í sumar..að sóla sig:) Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri..elska að liggja í sólbaði og stinga sér svo í ískalda laugina..ummm ég fer bara æi sæluvímu þegar ég hugsa um þetta:)

Jæja ég nenni ekki að vera pæla í þessu eitthvað frekar þessa stundina!!! En já ég skellti mér út í gær á kaffihús með Erlu vinkonu minn..og við ætluðum bara að fá okkur einn öl og fara svo heim...en nei nei þessi 1 bjór endaði í nokkrum og svo var ég bara komin á ball með Oxford og í þvílíku stuði..það voru kanski svona tíu hræður á þessu balli..en vá það var gaman:) Þeir eru klikkað góðir!!!

Guð ég var að horfa á fréttirnar á áðan og sá Unni Birnu fljúga á hausinn í beinni...greyið:( Ég horfði nú ekki á keppnina sjálfa en ég var samt mjög ánægð með stúlkurnar sem unnu mjög sætar og fínar:) 

Mér gekk mjög vel í prófunum hæsta einkunnin mín var 8 og er ég mjög ánægð með það, ég er nú yfirleutt bara ánægð ef ég næ...þarf ekki að fá 10:) Þannig að ég er mjög stolt af sjálfri mér:)

Ég er að vinna eins og mongó...það eru allir eitthvað veikir og maður þarf að leysa þetta lið af..ég kemst ekki einu sinni í útskriftaveislu á morgun afþví að ég er að vinna...ekki alveg nógu ánægð með það...en vinnan kallar það er víst:)

Já ég ætlaði alltaf að spurja...hvenær eru mærudagarnir??? Það verður að fara vinna í þessu bekkjarmóti, ég verð að koma bara einhverja helgina og við verðum að setjast niður nokkur saman og skippuleggja þessa helgi...svo við vitum hvað við ætlum að gera:) Mér skilst samt að Rúnar sé alveg á fullu í að undirbúa eitthvað og það er bara gott mál, en við verðum að fara ákveða eitthvað:)

GOTT Í BILI

Katie


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 11:36:34 / katie

Mín er mætt aftur..og kem sterk inn:)

Afsakið afsakið afsakið

 

Ég er ekki búin að vera neitt voðalega dugleg að blogga, en ég var búin að skrifa þvílíkt langt blogg í gær...en það datt út og ég var svona nett pirruð yfir því...en allaveg vegna "fjölda" áskorana þá ætla ég að blogga eitthvað skemmtilegt fyrir ykkur í dag:)

Silvía Nótt komst ekki áfram í júró, enda fannst mér hún ekki syngja vel, hún var að farast úr stressi...enda er það ekkert skrýtið, það var púað á hana fyrir og eftir sönginn!!! Ég man ekki eftir að það hafi gerst hjá Íslandi, en ég held að hún geti sjálfri sér um kennt, hún var víst búin að vera eitthvað dónaleg þessi elska:) En að mínu mati þá held ég að Ísland eigi aldrei eftir að komast aftur í aðalkeppnina...við verðum örugglega bara föst í undankeppninni!! Eins og lögin í gær sem komust áfram..ég spáði þeim ekki í úrslitin...þetta eru bara þessi stóru lönd sem kjósa hvort annað!!!! ég er bara í fílu:( nei ekki alveg!!!

Það er mikið búið að gerast hjá mér síðan ég bloggaði síðast, en ég er að hugsa um að fara aðeins aftur í tímann alla leið í apríl 2006.

....

Ég og Rakel fórum á Húsavík, vegna þess að skvísan átti að fara í pössun til ömmu sinnar og afa, mamman og pabbin voru á leið til Búdapest í helgarferð með fiskiðjunni!!! Við vorum mættar á víkinna á fimmtudegi og hittum svo aðalmömmu teymið á föstudeginum, þær önnu hebu og kiddý. Kiddý bauð okkur í hádeigismat, og ég sver það ég er liggur við ennþá södd eftir þennan hádeigismat...hann stóð til að verða fimm...en þá vorum við orðnar saddar:) En helgin var bara ekkert annað en át og þessir matartímar stóðu yfirleitt í nokkra klukkutíma:)

Ég kvaddi svo liðið mitt með kökk í hálsinum..ég átti erfiðara með að kveðja dóttur mína en hún mig:( en allavega þá gekk pössunin eins og í sögu:)

......

Svo var farið til Búdapest...og það var bara gaman:) Búdapest einkenndist af bjór, ´fötum og keilu...við fórum alltaf í diskókeilu á kvöldin og það var geggjað gaman:) Maður var samt orðið frekar slakur eftir nokkra bjóra...þá var maður ekki eins fær:)

Ég er alveg til í að fara aftur til Búdapest, en ég er að hugsa um að finna Marton ungverja og biðja hann að vera túlkur næst þegar ég fer...það kann enginn ensku þarna úti og það er frekar pirrandi!!!

Við fórum svo á skemmtistað eitt kvöldið, sem er bara svona eins og gaukurinn eða eitthvað..það var fín stemming, þanngað til að tvær gellur mættu á svæðið í bikiníum og byrjuðu að dansa upp á sviði...þetta var þá nektardansstaður og við höfðum ekki hugmynd um það...enda var allt á ungversku og hvernig áttum við að skilja nektardansstaður á ungversku!!! Þetta lið!!! Ég var nú á tímabili að pæla henda dömunum af sviðinu og taka við..þær nenntu ekki að hreyfa sig mikið þessar elskur!!! En ég myndi samt ekkert fækka fötum...:) Mér var svo ekkert farið að lítast á þetta...þannig að ég dróg kallinn bara heim á hótelið:)

....

 

Anna Bergmann. Gunna og Heiðdís eru að fara útskrifast á morgun úr Flensborg, og ég vil óska ykkur til hamingju með þennan áfanga í lífi ykkar...ég er stolt af ykkur:)

 

 

Jæja ég ætla að segja þetta gott í bili..

Lofa að vera duglegri að blogga:)

Later Katie


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 19:42:40 / katie

Páskar 2006

Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilegra páska:)

Það var bara tekið því rólega um páskana og skellt sér í sumarbústað, það var mjög fínt..bara slappa af og borða að sjálfsögðu páskaegg og góðan mat. Nói siríus klikkar sko aldrei, einfaldlega lannnggg bestur:) Maður chillaði í heitum potti og svo var farið í minigolf og það er bara helvíti gaman...ef maður er góður en ég kom sjálfri mér mjög á óvart þó svo að ég hafi aldrei unnið...en það er allt annað mál!!!

Það er bara rúm vika í Búdapest, og ætli að ég sendi ekki henni Önnu Hebu sms þegar ég verð í rúllustiganum á Leifsstöð..svo góð tilfinning að fara upp þennan stiga:)

Svo erum við Rakel að fara á Hú á fimmtudaginn eða á sumardaginn fyrsta..gellan er að fara í pössun til ömmu sinnar og afa á meðan ég er úti og meðan ég er í prófum..úfff ég á eftir að sakna hennar svo mikið;(  Hún er nefnilega svo mikil mömmu stelpa..að ég þarf að vera með hana yfir helgina svo hún aðlagist þeim!!!

Rakel er að kalla á mig það er best að ég fari að sinna skvís:)

Katie


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 23:22:39 / katie

Styttist í páska!!

Þið verið að afsaka bloggletina í mér...ég er bara búin að vera svo mikið að gera hjá mér..

 

Svo eru það nýjustu fréttirnar...ég er ekki að fara til Tallinn:( En við förum til Búdapest í staðinn, helvítis Akureyringarnir sviku okkur með flug og hótel..þetta eru bara hálvitar!!!!! Ég er að fara eftri rúmar 2 vikur, og ég er að fara versla svo mikið að það er ekki fyndð...við erum að tala um ZÖRU, disel búð, nikita, top shop og guð má vita hvað...!!! Eydís og Harpa þyrftu að koma með mér að versla þarna...við myndum gjörsamlega missa okkur:)

 

Páskarnir eru svo að koma, vei vei og ég veit ekkert hvað ég á að gera, fara í sumarbústað í Hveragerði og fara í fermingu eða fara hjemm!!! Ég er reyndar að fara á Hú þar næstu helgi, daman er nefnilega að fara í pössun til ömmu og afa, þannig að þetta er spurning sko!!!!

 

Ég ætla einmitt að fara kaupa mér páskaegg, nóa siríus nr 6, ummmm hlakka svo til að borða það, sé það í hyllingum:)  Hvernig páskaegg kaupir þú lesandi góður???

Segjum þetta gott í bili...veit ekkert hvað ég get sagt ykkur, ekkert merkilegt held ég...

bæjó

Katie


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5